Færsluflokkur: Íþróttir

Íslenska knattspyrnan

Þegar ég les blöðin yfirleitt á morgnanna og langar til þess að skoða úrslit leikja og umfjöllun þá finn ég bara umfjallanir um efstu deildir í karla og kvennaboltanum sem er skítt. þegar ég var að byrja að spila knattspyrnu í 4 deild með umfhö þá var fjallað um þá deild í dagblöðum og myndir fylgdu með. í dag er bara til úrvalsdeild og 1 deild í karlaboltanum og efsta deild í kvennaboltanum. ef ég ætla að kanna úrslit í neðri deild verð ég að fara inná ksi.is sem að er glatað því ég vil getað fylgst með í blöðum og útvarpi en þau hafa gleymt að það eru til neðri deildir í íslenskum íþróttum.

Xabi ekki fara

það ætla ég að vona að mínir menn fari ekki að losa sig við einn af sínum bestu mönnum bara af því að þeir fái hugsanlega Barry frá villa. það er nú ekki svo ósjaldan að leikmenn sem að eru að standa sig vel með liðum sínum koma svo yfir til stóru liðanna og ná sér síðan aldrei á strik.
mbl.is Juventus gerir sér vonir um að fá Alonso
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

fyrsta æfing hjá bjórvömb

jæja þá er fyrsta æfingin hjá bjórvömbinni búinn og ég líka þrátt fyrir að standa yfirleitt á sama stað. léttur leikur á morgunn við Hamar sem ég get ekki spilað, verð í golfmóti að lækka forgjöfina enn meir. var gerður að gjaldkera bjórvambar á æfingunni líklega vegna þess að ég er svo ofsalega gamall. á laugardaginn er svo leikur við Ástrík kl.17 á grasvellinum undir Hamri ég vona bara að ungu strákarnir verði sprækir, við þessir gömlu þurfum aðeins smá meiri tíma til aðlögunar.

Fabiano og Alves efstir á óskalistanum hjá Ferguson

jæja þetta er frábært allt þetta slúður í evrópuboltanum. það væri gaman að sjá þessa 2 leikmenn í ensku deildinni en ég vildi frekar sjá Alves hjá Liverpool, er samt í vafa held að hann sé of mikil kerling fyrir ensku deildina
mbl.is Fabiano og Alves efstir á óskalistanum hjá Ferguson
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

þá byrjar það

jæja nú ætla ég að byrja að blogga eins og svo margir aðrir eru að gera. Eins og sést er ég mikill Liverpoolmaður og  er mjög spenntur þessa daganna yfir hugsanlegum leikmannakaupum. Það er verið að næla í 2 fljóta og sókndjarfa bakverði, og em byrjar 7 júní sama dag og rás 2 open þannig að ég missi af fyrsta leik oh! en svona er þetta bara.

Höfundur

Elías Óskarsson
Elías Óskarsson
er Liverpool maður fram í rauðan dauðann

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband